Kraftvélar fékk mjög skemmtilega heimsókn frá leikskólanum Arnarsmára á dögunum, þar sem hátt í 90 börn komu í heimsókn.
Krakkarnir fengu kókómjólk og svala að drekka, snúð og kleinur í matinn og horfðu svo ýmist á teiknimyndir eða skoðuðu öll tækin sem voru á staðnum, og auðvitað fengu þau að setjast uppí tækin.
Við hér í Kraftvélum viljum þakka fyrir heimsóknina og látum nokkrar myndir fylgja frá heimsókninni:




