
Lyftarar
Toyota Industrial Equipment og BT sameinuðust árið 2000, þegar Toyota keypti BT verksmiðjuna, og saman mynduðu þau Toyota Material Handling, sem er nafnið enn þann daginn í dag.
Með yfir 100 ára reynslu í vöruhúsalausnum, hefur Toyota Material Handling orðspor fyrir hágæða tæki, framúrskarandi þjónustu og heildarlausnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Drifkraftur bæði Toyota og Kraftvéla er einfaldur, að einfalda vinnuferli, hámarka afköst notandanns og bjóða uppá framúrskarandi þjónustu.
Lyftarasvið Kraftvéla skiptist einfaldlega í tvennt, það eru Toyota lyftarar og BT vöruhúsatæki.
Hér eru nokkrar stiklur úr sögu Toyota Material Handling:
- 1918 - Sakichi Toyoda stofnar Toyota Spinning & Weaving Company
- 1946 - Ivan Lundquist stofnar BT
- 1956 - Toyota framleiðir sinn fyrsta dísellyftara
- 2000 - BT sameinast Toyota
- 2006 - Toyota fagnar 50 ára reynslu í vöruhúsalausnum, og BT fagnar 60 ára reynslu á sama sviði
- 2007 - Toyota kynnir Tonero dísellyftarann
- 2008 - Toyota Material Handling er enn og aftur í efsta sæti heimslistanns yfir vörumerki í vöruhúsalausnum
- 2010 - Níunda árið í röð sem Toyota Material Handling er í efsta sæti í heimsframleiðslu yfir vörumerki í vöruhúsalausnum
Hægt er að lesa nánar um þau vörumerki sem Kraftvélar bjóða uppá á sviði lyftara með því að smella á þau hér til vinstri.
Ný tæki á lager