Kraftvélar ehf

 

Saga Kraftvéla 

Árið 1989 tók P.Samúelsson hf. við umboði Komatsu vinnuvéla og hóf sölu og markaðssetningu í samstarfi við V.Æ.S. vélaverkstæði hf.

V.Æ.S vélaverkstæði hf. var fyrirtæki sem stofnað var við gjaldþrot fyrri umboðsaðila Komatsu en eins og áður sagði, var samstarf milli P.Samúelssonar hf. og V.Æ.S hf. fram til ársins 1992, en þá ákvað P.Samúelsson hf. að yfirtaka viðgerðar- og varahlutaþjónustuna fyrir Komatsu.

Kraftvélar hf. hóf rekstur 1. júní árið 1992 með tvö vörumerki, þ.e.a.s Komatsu vinnuvélar og Toyota lyftara, en það umboð hafði P.Samúelsson hf. fyrir stofnun Kraftvéla hf.

Fyrirtækið hóf rekstur í leiguhúsnæði að Funahöfða 6. í Reykjavík með 7 starfsmenn, þrjá viðgerðarmenn, sölumann, varahlutamann, skrifstofustúlku og framkvæmdastjóra. Af þessu hópi starfa enn þrjú hjá fyrirtækinu, en það eru þau Olga Kristjánsdóttir, Þórður Kristinsson og Ævar Þorsteinsson.

Fyrirtækið flutti á Dalveg 6-8 í Kópavogi um mitt ár 1998 og urðu þá mikil umskipti í rekstri fyrirtækisins, stækkun húsnæðis um tæpa 1.500 fermetra ásamt stóru útisvæði og fjölgun starfsmanna um tæp 20 ný stöðugildi.

Tveimur árum seinna eða árið 2000 settum við á laggirnar nýja þjónustu, en það er útleiga á vinnuvélum og hefur sá þáttur í okkar rekstri verið vaxandi ár frá ári.

Árið 2004 fór svo fyrirtækið í útrás. Um mitt árið festi fyrirtækið kaup á danska félaginu KFD A/S en það er umboðsaðili Komatsu í Danmörku, Færeyjum og Grænlandi.

Rekstur KFD A/S gekk vonum framar og var fyrirtækið stærra í veltu, starfsmannahaldi og í fjölda seldra véla, en Kraftvélar ehf.

Um mitt árið 2005 flutti fyrirtækið hluta af starfsemi sinni upp á Kjalarnes, þ.e.a.s Kraftvélaleiguna og Kraftvélasöluna og starfa þar nú 6 menn.

Seinni hluta sama árs urðu síðan eigendaskipti á félaginu er Páll Samúelsson ákvað að selja fyrirtækið og keypti Ævar Þorsteinsson félagið af Páli Samúelssyni og fjölskyldu.

Stuttu seinna seldi Ævar hluta félagsins til Matthíasar Matthíassonar sem var framkvæmdastjóri KFD A/S.

Frá árinu 2010 hafa orðið mikil umskipti og breytingar á starfsemi og eignarhaldi Kraftvéla ehf, því félagið hefur hætt allri starfsemi með Komatsu í Danmörku en starfsemi Kraftvélaleigunnar hefur verið endurreist.

Síðla árs 2009 keypti Ævar með félaga sínum Eiði Haraldssyni félagið Vélar & Þjónusta og var það félag síðan sameinað starfsemi Kraftvéla ehf þann 1. apríl árið 2010.
Kraftvélar ehf hefur því á sig blómum bætt og hefur nú einnig hafið starfsemi á landbúnaðarmarkaðnum.

Ævar Þorsteinsson og Eiður Haraldsson eiga því félagið í dag.

Allt frá stofnun fyrirtækisins hefur verið lögð höfuð áhersla á góða þjónustu við viðskiptavini, sé þjónustan góð, þá tryggir það framtíðarvöxt og stöðuleika fyrirtækisins.

Sé óskað eftir frekari upplýsingum um félagið, þá vinsamlega sendið fyrirspurn á Ævar Þorsteinsson, aevarth@kraftvelar.is